6 Mars 2015 15:20

Brot 164 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, við Hnoðraholtsbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.076 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og sjö óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 117.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.