14 Janúar 2016 18:11

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, að Vífilsstaðavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 880 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.