8 Febrúar 2016 11:06

Brot 73 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, á móts við Kauptún. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 669 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tíu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 122.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.