17 Desember 2009 12:00

Brot 303 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Hnoðraholtshverfi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1194 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 86 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Áttatíu óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 106.