24 Júní 2019 13:18

Brot 180 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, að Hnoðraholti. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.336 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 120.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.