31 Mars 2020 22:11

Brot 124 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, á móts við Kauptún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 906 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sautján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 111.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.