29 Apríl 2022 10:05

Brot 96 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, á móts við Miðgarð íþróttamiðstöð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.270 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sjö óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 113.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.