30 Mars 2011 12:00

Brot 117 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, við Hnoðraholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 870 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Átján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 119.