3 Desember 2012 12:00

Brot 91 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, við Hnoðraholtsbraut. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 1117 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fimm óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 106.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.