29 Maí 2013 12:00

Brot 57 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, við Urriðaholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 731 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 116.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.