8 Desember 2014 14:58

Brot 68 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, gegnt IKEA í Kauptúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 916 ökutæki þessa akstursleið og því ók lítill hluti ökumanna, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fimm óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 107.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.