16 Mars 2020 08:16

Brot 58 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, að Hvassahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 332 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 106 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 123.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.