28 Ágúst 2020 15:24

Brot 21 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, að Hvassahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 222 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 121.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.