8 Október 2020 09:52

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, að Brunnhólum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 322 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sex óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 124.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.