15 Desember 2020 14:01

Brot 57 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, að Hvassahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 347 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Átta óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 116.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.