15 Febrúar 2016 16:14

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, skammt norðan Krýsuvíkurvegar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 430 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 97.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.