10 Ágúst 2021 16:25

Brot 42 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, að Brunnhólum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 447 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Átta óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 120.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.