29 September 2021 12:04

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, að Hvassahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 261 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 103 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 114.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.