7 Júlí 2022 20:23

Brot 80 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, á móts við Stekkjarhvamm. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 588 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.