15 Febrúar 2023 09:32

Brot 124 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, við Vallarbarð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 841 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 96 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og fjórir óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 156.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.