12 Apríl 2024 15:17

Brot 131 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, við álverið í Straumsvík. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 410 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.