1 Apríl 2016 15:12

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, í Hvassahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 363 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Fimm óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 126.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.