6 Maí 2016 14:55

Brot 52 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, í Hvassahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 410 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sex óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 135.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.