12 Ágúst 2016 16:18

Brot 66 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Brunnhóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 503 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sex óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 128.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.