27 Október 2014 12:00

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í Hvassahrauni í vesturátt. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 273 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 103 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 117.