4 Desember 2017 15:59

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Brunnhóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 409 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 103 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 127.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og rökkur var á með hraðamælingunni stóð.