19 Febrúar 2018 15:05

Brot 29 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, að Straumsvík. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 353 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 107.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og mikill hliðarvindur var á meðan hraðamælingunni stóð.