8 Júní 2018 11:57

Brot 51 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Brunnhóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 552 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Ellefu óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 133.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að súld var á meðan hraðamælingunni stóð.