3 Desember 2018 16:07

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Brunnhóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 435 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir  ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 118.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.