12 Desember 2019 18:05

Brot 63 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Brunnhóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 481 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 107 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sextán óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 133.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að bjart og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.