24 Janúar 2020 17:12

Brot 76 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, að Brunnhólum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 415 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 106 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Átján óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 130.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.