29 Apríl 2020 10:28

Brot 125 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, á móts við Smáralind. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 988 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 130.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.