5 Febrúar 2021 09:32

Brot 124 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Kópavogi á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Smáralind. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.064 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 113.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.