23 Maí 2022 10:31

Brot 51 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Smáralind. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.889 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 111.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.