14 Mars 2014 12:00

Brot 65 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, gegnt Smáralind. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1304 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.