28 Janúar 2020 14:30

Brot 166 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Smáralind. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.236 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tíu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 107.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.