11 Mars 2020 09:25

Brot 181 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, á móts við Smáralind. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.390 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Þrjátíu og einn ók á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 161.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.