1 Desember 2008 12:00

Brot 271 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, að Breiðholtsbrú. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 952 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Fjörutíu og einn ók á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 105.