23 Febrúar 2022 09:44

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, á móts við Breiðholtsbraut. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 1.129 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 91km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.