30 Maí 2023 15:02

Brot 76 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, við Breiðholtsbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.261 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.