23 Nóvember 2016 16:10

Brot 117 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, við Stekkjarbakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.183 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 114.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.