30 Júlí 2010 12:00

Brot 56 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, sunnan Straumsvíkur. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 413 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en tíundi hluti ökumanna, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sjö óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 137.