21 Maí 2014 12:00

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Reykjavegi í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjaveg í austurátt, á móts við Ísfugl. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.