20 Ágúst 2014 12:00

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Reykjavegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjaveg í vesturátt, að Krikatorgi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 157 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Reykjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.