1 Maí 2015 10:58

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Reykjavegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjaveg í vesturátt, að Krikatorgi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 121 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.