17 Maí 2016 15:58

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Reykjavegi í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjaveg í austurátt, á móts við Reykjaveg 36. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.