22 Október 2019 09:12

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Reykjavegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjaveg í vesturátt, að Krikatorgi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 141 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.