4 Júlí 2018 09:57

Brot 96 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í suðurátt, við Stakkahraun. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 340 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.  Tuttugu og fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.