21 Janúar 2020 15:56

Brot 89 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í suðurátt, við Stakkahraun. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 354 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.  Tuttugu og einn ók á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.