19 Mars 2009 12:00

Tuttugu og átta ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 28 ökumanna mynduð á Reykjavíkurvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, á móts við bensínstöð N1. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 378 ökutæki þessa akstursleið og því óku 7% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71. 

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Reykjavíkurvegi. Þá óku hlutfallslega fleiri of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 10%. Þróunin á milli ára er því jákvæð hvað þetta varðar. Þess má geta að meðalhraði hinna brotlegu er nánast sá sami núna og í fyrra.